Landnámssetur Íslands, Brákarbraut 13 - 15, 310 Borgarnesi

 

Í Landnámssetri Íslands í Borgarnesi er lögð áhersla á að gera  þjóðararfinn Íslendingasögurnar aðgengilegan leikmönnum sem lítið þekkja til hans og endurvekja sagnahefðina sem þær eru sprottnar af. Með tveimur sýningum sem þegar hafa verið settar upp segjum söguna af Landnáminu eins og greint er frá því í Íslendingabók og Landnámu og söguna af Agli Skalla-Grímssyni eins og hún er skráð í Egils sögu. Sýningunum hefur verið komið fyrir í gömlu pakkhúsi, einu elsta húsi bæjarins. Landnámssýningin greinir frá því hvernig þjóð varð til á Íslandi, óbyggðri eyju lengst norður í höfum. En Egilssýningin rekur söguþráðinn í Egilssögu á óvenjulegan hátt. Þar túlkar fjöldi listamanna atvik sögunnar í tré.


Heimildir um upphaf byggðar hér á landi eru meðal helstu þjóðarverðmæta Íslendinga. Engin þjóð á í rituðu máli jafn greinargóðar lýsingar á högum fyrstu íbúa lands síns.

 

Með Landnámssetri Íslands í Borgarnesi er markmiðið að segja sögu þeirra. Landnámssagan er byrjunin. Síðan kemur Íslandssagan eins og vefur sem gengur út frá þessari byrjun. 
 
Staðsetning setursins í Borgarnesi er einstaklega heppileg vegna þess að Borgarfjörður er sögusvið glæsilegustu landnámssögu Íslendingasagna, Egils sögu en þar gerðust einnig atburðir úr Gunnlaugs sögu Ormstungu og Laxdælu.